Þjónusta

Markmið Geymslu Eitt er að bjóða viðskiptavinum bæði lægsta leiguverð á Íslandi og bestu þjónustu á geymslumarkaðnum. Húsnæði Geymslu Eitt er byggt til að auðvelda viðskiptavinum aðgang og tryggja bestu meðferð á því sem geymt er. Með sérhönnuðu geymsluhúsnæði fá viðskiptavinir þjónustu sem enginn annar getur boðið upp á.

Þú ert mikið fljótari að fylla og tæma geymslu þótt þú akir heldur lengra til okkar.


Ástæðan er sú að þú getur ekið alveg upp að flestum geymslum. Svo ekki sé minnst á vinnusparnaðinn. Það þýðir líka beinharðan peningasparnað þegar notaðir eru sendibílar á mæli.Geymsla Eitt býður upp á aðgengi sem hannað er að þínum þörfum. Hægt er að komast í geymslurnar alla daga ársins frá 8:00 til 22:00.

Ekki er opið á nóttunni til að auka öryggi viðskiptavina.

  • Þú sparar mikinn tíma að fylla og tæma geymslu þótt þú akir lengra til okkar
  • Þú getur fengið lægra leiguverð með langtímabindingu
  • Þú getur valið úr sjö stærðum þá geymslustærð sem hentar best þínum þörfum
  • Allar geymslur eru vaktaðar af öryggismyndavélum 24 tíma á sólarhring
  • Allar geymslur eru upphitaðar og halda jöfnum hita allt árið og rakastigi í lágmarki
  • Frír ótakmarkaður aðgangur í geymslur og allar geymslur með stórum hurðum
  • Þú læsir þinni geymslu með eigin lás sem tryggir þinn einka aðgang